Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. september 2016 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og uppfæra eldvarnir, ásamt því að breyta fyrirkomulagi á lóð og nýta hana sem geymslusvæði fyrir sýru, gas og klór við atvinnuhúsnæði á lóð nr. 2E og 2F við Súðarvog. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. nóvember 2016.
Gjald kr. 10.100