Lögð fram fyrirspurn Áslaugar Drafnar Sigurðardóttur, mótt. 10. október 2016, um að byggja bíslag við inngang kjallara hússins á lóð nr. 34 við Rauðalæk. EInnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2016.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2016.