Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25 ágúst 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. ágúst 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN060440, niðurrif á útveggjum 2. hæðar ásamt plötu yfir 1. hæð núverandi húsa á lóð nr. 100 við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. ágúst 2022.