Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. febrúar 2022 var lögð fram fyrirspurn Friðriks Friðrikssonar dags. 18. janúar 2022 um að breyta notkun efri hæðar hússins á lóðunum nr. 16 og 18 við Vatnagarða úr skrifstofum í áfangaheimili. Einnig er lögð fram teikning Studio F ehf. dags. 30 maí 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. mars 2022.