Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. nóvember 2016 var lögð fram fyrirspurn Sigrúnar Erlu Sigurðardóttur og Jóhanns Egils Jóhannssonar, mótt. 19. október 2016, um að setja kvist á húsið á lóð nr. 10 við Melaholt. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. nóvember 2016.