Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Mannverk 3 ehf. dags. 7. nóvember 2016, framsent frá byggingarfulltrúa, þar sem óskað er eftir niðurrifi hússins á lóð númer 21 við Grundarland og byggingu á nýju eins hæðar húsi með kjallara undir norðurhluta. Meðfylgjandi eru drög að teikningum frá Arkþingi. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. desember 2016.