Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. nóvember 2022 var lögð fram umsókn Byggingafélags Gylfa og Gunnars hf., dags. 13. október 2022, ásamt bréfi, dags. 10. október 2022, um breytingu á deiliskipulagi Vesturlandsvegar, Halla vegna lóðarinnar nr. 33 við Lambhagaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst að heimilað verði að vera með kjallara undir húsnæðinu sem nýttur yrði sem bílastæði eða lager, samkvæmt uppdr. Archus arkitekta dags. 10. september 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2022.