Lögð fram umsókn
Yrki arkitekta ehf.
mótt. 20. nóvember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar 2 vegna lóðarinnar nr. 2 við Hallarmúla. Breytingin felst í megin atriðum í því að auka leyfilegt byggingarmagn og auka hæðarfjölda á lóðinni með tilliti til aðliggjandi byggðar, í byggingunni verður hótel, leyfilegur hæðarfjöldi verður 5 hæðir með efstu hæðina inndregna frá Hallarmúla en til vesturs stallast byggingin niður í 1 hæð, bílastæði verða fjarlægð af yfirborði lóðarinnar og gerður er bílakjallari, samkvæmt uppdr.
Yrki arkitekta ehf.
dags. 15. nóvember 2017.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.