Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. nóvember 2016 var lögð fram fyrirspurn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 10. nóvember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi við Vesturlandsveg, Hallar, vegna lóðanna nr. 8 og 10 við Lambhagaveg sem felst í sameiningu og stækkun lóðanna. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. nóvember 2016.