Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. maí 2021 var lögð fram fyrirspurn Líflands ehf. dags. 11. mars 2021 um uppbyggingu framleiðsluhúsnæðis fyrir hveitiframleiðslu á lóð nr. 8 við Lambhagaveg, samkvæmt tillögu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2021.