Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. desember 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. nóvember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á 1. hæð með tröppur niður í garð við fjöleignarhús á lóð nr. 9 við Garðsenda. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Samþykki meðeigenda ódags. fylgir erindi. Gjald kr. 10.100