Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Faxaflóahafna sf., mótt. 15. febrúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Örfiriseyjar, Vesturhafnar, vegna lóðarinnar nr. 37B við Fiskislóð. Í breytingunni felst aukning á nýtingarhlutfalli og hækkun á hámarkshæð bygginga, samkvæmt uppdr. Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf., dags. 23. janúar 2017. Tillagan var auglýst frá 13. mars til og með 24. apríl 2017. Engar athugasemdir bárust.