Stórfjölskylduhús
Blesugróf 30
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 887
6. október, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. september 2022 var lögð fram fyrirspurn Sýrfells ehf., dags. 21. júní 2022 ásamt bréfi ódags. um hækkun á hámarks gólfkóta 1. hæðar hússins á lóð nr. 30 við Blesugróf. Einnig var lagður fram lagnauppdr, dags. í febrúar 1974, hæðarblaði dags. í nóvember 2016 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. september 2022. Erindi er lagt fram að nýju ásamt nýrri fyrirspurn Sýrfells ehf. dags. 27. september 2022 og bréfi dags. 27. september 2022 þar sem óskað er eftir útskýringum á fimmta lið í umsögn skipulagsfulltrúa.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108878 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008285