Lögð fram umsókn Jóns Davíðs Ásgeirssonar, mótt. 10. mars 2017 um breytingu á deiliskipulagi Örfiriseyjar vegna lóðar nr. 14 við Grandagarð. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir nýrri timburbryggju fyrir gesti fyrirhugaðs veitingastaðs á 1. og 2. hæð. Utan á timburbryggjunni er gert ráð fyrir flotbryggju sem slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur afnot og aðgang að, samkvæmt uppdr., ódags. Einnig lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 23. nóvember 2016.