Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. júlí 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. júlí 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvist á götuhlið, koma fyrir þakgluggum á götu- og garðhlið og innrétta íbúð í risi fjölbýlishúss á lóð nr. 13 við Seljaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. ágúst 2022.