Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. apríl 2019 var lögð fram fyrirspurn Jóhanns Einarssonar dags. 2. apríl 2019 um stækkun hússins á lóð nr. 13 við Seljaveg sem felst í byggingu sólskála við 1. hæð hússins og nýta þak skálans sem svalir, samkvæmt skissu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2019.