Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. ágúst 2018 þar sem sótt er um leyfi til að setja tvær hurðir á vesturhlið kjallara, stækka svalir á 2. hæð ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðum svölum á 2. hæð vesturhliðar á húsi á lóð nr. 42 við Sólheima. Samþykki meðeigenda fylgir erindi dags. 21. janúar 2018. Bréf frá hönnuður vegna breytingar á umsókn dags. 31. júlí 2018. Gjald kr. 11.000