Stækka svalir og fl.
Sólheimar 42
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 704
9. nóvember, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. ágúst 2018 þar sem sótt er um leyfi til að setja tvær hurðir á vesturhlið kjallara, stækka svalir á 2. hæð ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðum svölum á 2. hæð vesturhliðar á húsi á lóð nr. 42 við Sólheima. Erindi var grenndarkynnt frá 5. október 2018 til og með 3. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust.
Samþykki meðeigenda fylgir erindi dags. 21. janúar 2018. Bréf frá hönnuður vegna breytingar á umsókn dags. 31. júlí 2018. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

104 Reykjavík
Landnúmer: 105320 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019386