Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. september 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi, BN055571, sem felst í því að vinnustofu 0102 er breytt í íbúð þannig að íbúðir verða 7 í stað 6, breyta innra skipulagi og umgjörð glugga á suðurhlið húss á lóð nr. 34 við Nýlendugötu, samkvæmt uppdr. Arkþings síðast breytt dags. 17. ágúst 2020. Gjald kr. 11.200