Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. júlí 2020 var lögð fram fyrirspurn Klitts ehf. dags. 23. júní 2020 um stækkun hússins á lóð nr. 16 við Vitastíg sem felst í að gera bíslag við gafl hússins og færa stiga að hluta til í viðbygginguna, samkvæmt uppdr. þar sem fyrrhugaðar breytingar eru yfirstrikaðar, dags. 15. nóvember 2019 síðast br. 18. desember 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020.