Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Teiknistofunnar Óðinstorgi HH ehf. f.h. Klittur ehf. dags. 27. febrúar 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits vegna lóðar nr. 16 við Vitastíg. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Óðinstorgi HH ehf. dags. 23. febrúar 2018. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. apríl 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. júlí 2018 til og með 22. ágúst 2018. Engar athugasemdir bárust.