Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. janúar 2017 þar sem sótt er um leyfi til að koma upp vinnubúðum með svefnskálum tveimur hæðum fyrir 44 starfsmenn í sérhönnuðum svefngámum á lóð nr. 14 við Hlíðarenda. Greinargerð brunahönnuðar dags. 26. október 2016 og bréf til sviðsstjóra Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur fylgja erindi. Stærð svefnskála er: 753,0 ferm., 2.122,7 rúmm. Gjald kr. 10.100