Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. desember 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. desember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að breyta geymslu og verkstæði á fyrstu og annarri hæð í líkamsræktarstöð í húsi nr. 51 á lóð nr. 49 - 51 við Fiskislóð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. janúar 2017.
Gjald kr. 10.100