Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. febrúar 2017 var lögð fram fyrispurn Arkitekta Laugavegi 164 ehf., mótt. 31. janúar 2017, um heimild til að auka byggingarmagn á lóðunum Vatnsstígur 10A og Vatnsstígur 12 skv. tillögu, dags. 27. janúar 2017. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.