Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Kristjáns Hilmarssonar, mótt. 1. febrúar 2017, um að breyta einbýlishúsi á lóð nr. 34 við Lautarveg í tvíbýlishús með tveimur bílskúrum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. mars 2017.