Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Hauks Guðjónssonar, mótt. 2. febrúar 2017, varðandi byggingu þriggja bílskúra á baklóð fjölbýlishússins nr. 21-25 við Hamrahlíð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. mars 2017.