Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. febrúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Rósu Bjarkar Hauksdóttur, mótt. 6. febrúar 2017, varðandi stækkun og hækkun hússins á lóð nr. 10 við Langholtsveg. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. mars 2017.