Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 16. október 2018 þar sem sótt er um leyfi til að rífa bílskúr og byggja nýjan á lóð nr. 5 við Hrefnugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 29. október 2018 til og með 26. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. september 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2018. Stærð: 34,5 ferm og 76,1 rúmm. Gjald kr. 11.000