Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Jóns J. Hjartarsonar, mótt. 20. febrúar 2017, um að færa byggingarreit bílskúrs á lóð nr. 9 við Skerplugötu þannig að hann verði samhliða bílskúr á lóð nr. 7 við Skerplugötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. apríl 2017.