Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. febrúar 2017 þar sem sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum, sem eru þær að svalir hafa verið byggðar á 4. hæð, gluggum breytt í svalahurð og hurð út í garð fjarlægð, einnig er sótt um að innrétta íbúð á 2. hæð, byggja svalir á suðausturhlið og sameina 0102 og 0103 í eina verslun á 1. hæð húss á lóð nr. 1 við Týsgötu. Samþykki meðeigenda dags. 16. janúar 2017 og 13. febrúar 2017 fylgir erindi ásamt umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 5. desember 2016. Gjald kr. 11.000