Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Ragnheiðar Sverrisdóttur, mótt. 18. maí 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.2, Lokastígsreits, vegna lóðarinnar nr. 1 við Týsgötu. Í breytingunni felst að setja svalir á húsið sem snúa að bakgarði, samkvæmt uppdr. ARKHD, dags. 4. janúar 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 8. febrúar 2018 til og með 8. mars 2018. Engar athugasemdir bárust.