Lögð fram fyrirspurn Þorgeirs Jónssonar f.h. Aðalsteins Viðars Júlíussonar mótt. 4. janúar 2018 varðandi byggingu bílskúrs á lóð nr. 32 við Egilsgötu, samkvæmt skissu ódags. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2018.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. janúar 2018.