Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Ara Gísla Bragasonar, mótt. 10. mars 2017, um að rífa bílskúr á lóð nr. 127 við Ægisíðu og byggja í staðinn 70 fermetra íbúðarherbergi með tengingu við núverandi hús, samkvæmt tillögu
Hornsteina arkitekta ehf.
, dags. 9. mars 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2017.