Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. janúar 2018 þar sem sótt er um leyfi til að rífa bílskúr og reisa í hans stað viðbyggingu við hús á lóð nr. 127 við Ægisíðu. Erindi var grenndarkynnt frá 9. febrúar 2018 til og með 9. mars 2018. Engar athugasemdir bárust.
Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. dags. 27. apríl 2017. Samþykki meðlóðarhafa og aðliggjandi lóðarhafa fylgir áritað á teikningu. Viðbygging (í stað bílskúrs): 79,8 ferm., 257,1 rúmm. Gjald kr. 11.000