Tvíbýlishús
Iðunnarbrunnur 7
Síðast Synjað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 786
28. ágúst, 2020
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. júlí 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. júní 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypt tvíbýlishús á tveimur hæðum á lóð nr. 7 við Iðunnarbrunn. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020.
Stærðir: 236.0 ferm., 767.0 rúmm. Erindi fylgir mæliblað 2.693.4 endurútgefið 12. júlí 2007, lóðauppdráttur 2.693.4 dags. 28. febrúar 2020 og hæðablað 2.693.4 - B3 dags. september 2009 og samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar nr. 5 dags. 8. júní 2020. Gjald kr. 11.200
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020. Samræmist ekki deiliskipulagi.

113 Reykjavík
Landnúmer: 206068 → skrá.is
Hnitnúmer: 10079497