Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. júní 2017 var lögð fram fyrirspurn Ingibjargar Agnesar Jónsdóttur, mótt. 15. mars 2017, um að breyta óskráðum íbúðarherbergjum í húsinu nr. 3 á lóð nr. 1-7 við Seljaland í stúdíóíbúðir. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 23. júní 2017.