Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Lindu Dísar Kristinsdóttur, mótt. 22. mars 2017, um að fjölga íbúðum hússins nr. 6 á lóð nr. 6-8 við Rauðagerði sem felst í að gera íbúð í kjallara með sér inngangi. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. maí 2017.