Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. júní 2017 var lögð fram umsókn
Arwen Holdings ehf.
, mótt. 4. júní 2017, ásamt bréfi, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.4, Lokastígsreits 4, vegna lóðarinnar nr. 36 við Skólavörðustíg. Í breytingunni felst stækkun hússins, setja svalir á 2. og 3. hæð hússins og setja hjóla- og sorpgeymslu á baklóð, samkvæmt uppdr. 21. mars 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs Vakin er athygli umsækjanda á að erindið fellur undir GJALDSKRÁ vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.