Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. mars 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. mars 2017 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta tveimur herbergjum í litla íbúð í húsi á lóð nr. 14 við Vitastíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.