Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. júní 2020 var lögð fram fyrirspurn Sigurðar Haraldssonar dags. 11. maí 2020 um að hækka þak hússins á lóð nr. 24 við Heiðargerði og setja kvisti á þakið ásamt því að stækka húsið og gera þar sólstofu. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2020.