Lögð fram fyrirspurn Helga Mars Hallgrímssonar, mótt. 29. mars 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar 143 og 145 við Laugaveg sem felst í hækkun hússins og stækkun til norðurs, setja kvisti og svalir á húsið, fjölga íbúðum og færa glugga og hurðir í upprunalegt horf, samkvæmt tillögu Arkþings ehf., dags. ódags. Einnig er lagður fram samningur eigenda vegna umsóknar um deiliskipulagsbreytingu, dags. 1. október 2016.