Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. apríl 2017 var lögð fram fyrirspurn Maríu Karenar Ólafsdóttur og Valdimars Bjarnasonar, mótt. 28. mars 2017, um að breyta bílgeymslu í húsinu á lóð nr. 9 við Einimel í geymslu og gera byggingarreit fyrir einfaldan eða tvöfaldan bílskúr á lóð. Einnig er lagt fram bréf Maríu Karenar Ólafsdóttur og Valdimars Bjarnasonar, dags. í mars 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 26. maí 2017.