Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. apríl 2017 var lögð fram fyrirspurn Önnu Maríu Þórðardóttur, mótt. 19. apríl 2017, um breytingu á deiliskipulagi Grundahverfis vegna lóðar nr. 5 við Búagrund á Kjalarnesi sem felst í breytingu á byggingareit lóðarinnar, samkvæmt uppdrætti Otium, dags. 10. apríl 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5.maí 2017.