Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. maí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteyptan bílskúr við austurhlið lóðar upp við lóðarmörkum nr. 38 á lóð fjölbýlishúss nr. 36 við Drápuhlíð. Erindi var grenndarkynnt frá 30. júní 2017 til og með 28. júlí 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Hildur Sólveig Pétursdóttir hrl. f.h. Ásgerðar Vigfúsdóttur, dags. 17. júlí 2017 og Steinar Jens Friðgeirsson, dags. 28. júlí 2017. Bréf frá hönnuði dags. 9. maí 2017 fylgir. Stærð bílskúr: 28,0 ferm., 85,4 rúmm. Gjald kr. 11.000