Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
THG Arkitekta ehf.
mótt. 14. nóvember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Grafarholts, svæði 3, vegna lóðar nr. 27 við Jónsgeisla. Breytingin gengur út á að útbúa óeinangraða útigeymslu og steypa plötu yfir og undir, geymslan kemur að stoðvegg sem stendur á milli Jónsgeisla 25 og 27. Koma fyrir verönd ofaná og steypa 90 cm háa stoðveggi við verönd á vesturhorni lóðar, samkvæmt uppdrætti
THG Arkitekta ehf.
, dags. 8. desember 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 22. desember 2017 til og með 24. janúar 2018. Engar athugasemdir bárust.