Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. júní 2021 var lögð fram fyrirspurn Jóns Davíðs Ásgeirssonar f.h. Trípólí ehf., dags. 28. maí 2021 um rekstur veitingastaðar í flokki II, tegund a, í rými 101 á jarðhæð í húsi á lóð nr. 64 við Njálsgötu. Rýmið er í dag skráð sem verslun. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. júní 2021.