Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. ágúst 2017 var lögð fram fyrirspurn Birgis Fannars Birgissonar, mótt. 13. júní 2017, um að sameina þrjú samliggjandi íbúðarherbergi á jarðhæð Hraunbæ 80 (lóð nr. 62-100 við Hraunbæ), sem í dag tilheyra hvert sinni íbúð ofar í húsinu, og baðherbergi ásamt tengigangi í eina tveggja herbergja íbúð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. ágúst 2017.