Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. júní 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. júní 2017 þar sem sótt er um samþykki á reyndarteikningum þar sem gerð er grein fyrir breytingum sem gerðar hafa verið á byggingartíma, m.a. er útbúin útigeymsla og aðgengi að snyrtingu breytt á 3. hæð, hurðir settar á norðurhlið bílskúra, sorpgerði og þakkanti breytt, innréttað baðherbergi og eldhús í kjallara og stigi fjarlægður milli kjallara og 1. hæðar í fjölbýlishúsi á lóð nr. 16 við Lautarveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. júlí 2017.
Stærð: xx ferm., xx rúmm. Jafnframt er erindi BN052450 fellt úr gildi. Gjald kr. 11.000