Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. júní 2017 var lögð fram fyrirspurn Guðnýjar Nielsen, mótt. 26. júní 2017, um að setja svalir á 2. hæð hússins á lóð nr. 22 við Bragagötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skiplagsfulltrúa, dags. 7. júlí 2017.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. júlí 2017 samþykkt. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg 1193/2016.