Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. október 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. október 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða nýbyggingu fyrir höfuðstöðvar Hjálpræðishersins á lóð nr. 72-74 við Suðurlandsbraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2017.
Stærðir: A-rými 1.442,0 ferm., 7.206,5 rúmm. B-rými x ferm., x rúmm. Gjald kr. 11.000